Sveitarfélögin
Könnun

Færð þú góða þjónustu hjá þínu sveitarfélagi

Nýskráning
Kennitala
(Dæmi: 0110012230)
Áfram
Fréttir
17.7.2007 16:52:30
Ný heimasíða Sunnan3
Eins og sjá má hefur Sunnan3 vefurinn fengið andlitslyftingu með nýrri heimasíðu. Opnun heimasíðunar og meðfylgjandi breytingar eru fyrsta skrefið í átt að rafrænu þjónustutorgi sem er eitt af menginverkefnum Sunnan3. Það er hugbúnaðarfyrirtækið Idega sem annast alla þróun og hönnun við heimasíðuna og þjónustutorgið. Til að byrja með mun heimasíðan fyrst og fremst hafa það hlutverk að kynna Sunnan3 verkefnið og veita upplýsingar um stöðu mála. Ekki verður því um neina gagnvirka þjónustu um að ræða fyrr en síðar í sumar. Þá munu íbúar geta fengið sín eigin svæði gagnvart sveitarfélögunum og notfært sér ýmsa rafræna þjónustu sem ekki hefur verið í boði áður.
17.7.2007 16:52:30
Opnun Skrifstofuhótels í Þorlákshöfn
Þann 13. september var opnað skrifstofuhótel í Þorlákshöfn og er það Steinavík ehf. sem tekur að sér að reka hótelið. Um er að ræða þriðja hótelið sem ætlunin er að opna innan vébanda verkefnisins Sunnan3 - rafrænt samfélag. Fyrsta hótelið var opnað á Selfossi í febrúar s.l. og annað hótel var opnað í Hveragerði í lok júní. Skrifstofuhótelið í Þorlákshöfn er til húsa að Unibakka 11.

Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótela er að koma til móts við þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofu-aðstöðu með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð. Hér er einnig um að ræða möguleika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í lækkun skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft jákvæð samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í tengslum við atvinnusókn, mengun og slysahættu.
17.7.2007 16:52:29
Opnun Skrifstofuhótels á Selfossi
Fyrsta Skrifstofuhótel á Íslandi tekur til starfa á Selfossi fimmtudaginn 24 febrúar. Um er að ræða fyrsta hótelið af þremur sem ætlunin er að opna á Árborgarsvæðinu innan vébanda verkefnisins Sunnan3 - rafrænt samfélag.

Skrifstofuhótelið er samvinnuverkefni Sunnan3 - rafræns samfélags, Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og radíóþjónustu Suðurlands (TRS). Skrifstofuhótelið verður staðsett í húsnæði Verkfræðistofu Suðurlands á annari hæð í 'Kjarnanum' Austurvegi 3-5 á Selfossi og þar verður opnunarathöfnin haldin.

Markmiðið með uppbyggingu Skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofuaðstöðu með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótles eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð. Hér er einnig um að ræða möguleika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í lækkun skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft jákvæð samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í tengslum við atvinnusókn, mengun og slysahættu.

Árni Magnússon félagsmálaráðherra mun opna Skrifstofuhótelið með formlegum hætti. Árni er búsettur í Hveragerði og telst því vera í markhópi þeirra sem geta nýtt sér Skrifstofuhótel, enda hefur hann sótt vinnu til höfuðborgarsvæðisins á undanförnum árum. Að auki munu talsmenn Sunnan3 verkefnisins og rekstraraðilar Skrifstofuhótelsins flytja ávörp og kynna hugmyndafræðina á bak við skrifstofuhótelið og Sunnan3 verkefnið almennt.

Frekari upplýsingar er að finna á: www.sunnan3.is eða hjá verkefnisstjóra Sunnan3, í síma 6931533, netfang: siggi@sunnan3.is
17.7.2007 16:52:29
Skrifstofuhótel opnað á Selfossi
Fyrsta skrifstofuhótel á Íslandi var opnað á Selfossi fimmtudaginn 24 febrúar. Rekstur skrifstofuhótels er samvinnuverkefni Sunnan3 - rafræns samfélags, Verkfræðistofu Suðurlands og Tölvu- og rafeindaþjónustu Suðurlands (TRS). Skrifstofuhótelið er staðsett í húsnæði Verkfræðistofu Suðurlands í 'Kjarnanum' á Selfossi, þar sem áður voru skrifstofur KÁ.

Markmiðið með rekstri skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa svæðisins sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja vinna 2-3 daga í viku í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofuaðstöðu fyrir 5 manns, með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi.

Fjöldi gesta kynnti sér aðstæður og þjónustu skrifstofuhótelsins á sérstakri opnunarathöfn s.l. fimmtudag og voru þeir ánægðir með þessa nýjung. Orri Hlöðversson bæjarstjóri í Hveragerði og fromaður verkefnisstjórnar Sunnan3 bauð gesti velkomna, Árni Magnússon félagsmálaráðherra flutti ávarp og Sigurður Tómas Björgvinsson verkefnisstjóri Sunnan3 og Páll Bjarnason framvkæmdastjóri Verkfræðistofu Suðurlands kynntu hugmyndina á bak við rekstur skrifstofuhótels.
17.7.2007 16:52:29
Opnun Skrifstofuhótels í Hveragerði
Þann 30. júní s.l. var opnað nýtt skrifstofuhótel í Hveragerði. Það er Byr Skrifstofuþjónusta sem mun annast rekstur skrifstofuhótelsins að Austurmörk 4, en húsnæðið hefur allt verið endurbyggt á glæsilegan hátt. Um er að ræða annað hótelið af þremur sem ætlunin er að opna innan vébanda Sunnan3 verkefnisins. Fyrsta hótelið var opnað á Selfossi í febrúar s.l. og í haust stendur til að opna þriðja hótelið í Þorlákshöfn.

Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótela er að koma til móts við þarfir íbúa sem starfa á höfuðborgar- svæðinu, en vilja og hafa tök á því að vinna hluta vinnutíma síns í heimabyggð. Um er að ræða fullkomna skrifstofu-aðstöðu með öflugu háhraðasambandi og hvetjandi vinnuumhverfi. Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heima-byggð. Hér er einnig um að ræða mögu-leika á hagræðingu fyrir vinnuveitendur í lækkun skrifstofukostnaðar. Að auki getur skrifstofuhótel haft jákvæð samfélagsleg áhrif þar sem það getur dregið úr umferð í tengslum við atvinnusókn, mengun og slysahættu.
17.7.2007 16:52:28
Útboð um rekstur 'Skrifstofuhótels'
Sunnan3 - verkefni um rafrænt samfélag, óskar eftir samstarfsaðilum um tilraun til reksturs þriggja skrifstofuhótela í sveitarfélögunum Árborg, Hveragerði og í Ölfusi.

Markmiðið með uppbyggingu skrifstofuhótels er að koma til móts við þarfir íbúa sveitarfélaganna þriggja sem starfa á höfuðborgarsvæðinu, en vilja og hafa tök á að vinna hluta sinnar vinnu í heimabyggð. Leitað er eftir fullbúinni skrifstofuaðstöðu með öflugu háhraðasambandi. Æskilegt er að húsnæðið sé rekið í tengslum við annan rekstur til að tryggja lifandi starfsumhverfi og einnig til að halda niðri rekstrarkostnaði. Ekki er skilyrði að sami aðilinn sjái um rekstur hótelanna þriggja.

Kostir skrifstofuhótels eru augljósir fyrir starfsfólk sem þarf að sækja vinnu fjarri heimabyggð, en einnig er stefnt að hagræðingu fyrir vinnuveitendur, einkum í lækkun skrifstofukostnaðar.

Áætlað er að tilraunin standi í eitt ár og að þeim tíma liðnum verður gerð úttekt á árangri hennar. Sunnan3 veitir fjárstuðning til rekstursins á meðan að á tilrauninni stendur, en markmiðið er að í framtíðinni verði skrifstofuhótelin sjálfbærar rekstrareiningar.

Hér má finna kröfulýsingu vegna skrifstofuhótels.
17.7.2007 16:52:27
Samstarf við Orkuveitu Reykjavíkur
Sunnan3 hefur komið á samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur (OR) um þarfagreiningu og hugsanlega uppbyggingu rafrænnar grunngerðar á starfssvæði verkefnisins. Til að byrja með mun OR aðstoða Sunnan3 við tæknilega þarfagreiningu vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á grunnnetinun. Ákveðið var að stofna sérstakan ráðgjafahóp um tæknileg málefni verkefnisins og mun Þorleifur Finnsson framkvæmdastjóri nýsköpunarsviðs vera fulltrúi OR í hópnum. Aðrir í hópnum verða Ásbjörn Blöndal framkvæmdastjóri framkvæmda- og veitusviðs Árborgar og Júlíus Pálsson framkvæmdastjóri TRS á Selfossi, en fyrirtækið hefur verið aðili að Sunnan3 frá upphafi. Orkuveitan er tilbúin til þess að kalla til sérfræðinga á ýmsum sviðum við þessa þarfagreiningu. Litið verður á vinnu OR sem framlag þeirra til verkefnisins, án frekari skuldbindinga af hálfu Sunnan3.
17.7.2007 16:51:29
Umsóknir
Nú getur þú sent inn umsóknir með gagnvirkum hætti beint af þjónustutorginu þínu. Allur ferill og afgreiðsla umsóknarinnar er sjálfvirkur sem sparar tíma við innslátt, vinnslu og flýtir fyrir ákvarðanatöku. Til að byrja með verður hægt að senda inn umsóknir um grunnskóla, frístundarheimili, skólamáltíðir, tónlistarskóla og leikskóla. Á næstu mánuðum verður einnig hægt að senda inn og afgreiða umsóknir á sviði skipulags- og byggingamála með þessum hætti.
Til baka
Sunnan3  |  Austurvegur 2  |  Selfoss  |  Sími: 480 1900  |  Fax: 480 1901  |  Netfang: sunnan3@sunnan3.is